Fara beint í efni
Til baka í fréttir

Þrjú skref fyrir parketlögn

Birt 11. ágúst 2026

1 mín lestur

parketlogn · undirbuningur

Rakamæling, jöfnun og aðlögun. Þessi þrjú atriði ráða því hvernig gólfið lítur út eftir fimm ár.

1. Rakamæling

Við mælum raka í steypunni áður en nokkuð er lagt. Fyrir parket þarf gildið að vera komið niður fyrir mörkin sem framleiðandinn setur, oftast 85% rakastig. Nýtt gólfplan þarf gjarnan margar vikur í viðbót. Sé rakinn of hár leggjum við rakasperru eða bíðum.

2. Jöfnun undirlags

Ójöfnur yfir 2 mm undir tveggja metra réttskeið koma fram síðar sem hljóð og laus samskeyti. Við flotum lægðir og slípum niður toppa þar til flöturinn stenst mælinguna.

3. Aðlögun efnis

Parketið stendur óopnað inni í rýminu í 48 klukkustundir, við sama hita og raka og verður eftir lögn. Þannig hreyfist efnið ekki eftir að það er komið niður.

Tímarammi

Íbúð upp á 70 m² tekur tvo til fjóra daga: einn dagur í undirbúning, einn til tveir dagar í lögn og einn dagur í lista og frágang. Við skilum rýminu hreinu.

Segðu okkur frágólfinu þínu.

Frítt verðtilboð, við hringjum til baka innan virks dags og vinnum um allt höfuðborgarsvæðið.

Segðu okkur stuttlega frá verkinu

Með því að senda samþykkir þú persónuverndarstefnu okkar.