Fara beint í efni

Vefkökur

Stutta svarið: vefurinn notar engar vafrakökur, engin greiningar- eða auglýsingaforrit þriðju aðila og biður þess vegna ekki um samþykki. Hér er langa svarið, svo þú sjáir sjálf hvað er geymt í vafranum þínum.

Síðast uppfært: 8. september 2026

01

Engar vafrakökur

Vefurinn setur enga vafraköku (e. cookie) í vafrann þinn, hvorki sína eigin né frá öðrum. Hér eru engin Google Analytics, engir Facebook-pixlar, engar auglýsingar og engar leturgerðir sóttar frá þriðja aðila. Öryggisstefna vefsins (Content Security Policy) bannar vafranum beinlínis að hlaða forritum annars staðar frá.

02

Það sem er geymt í vafranum

Vefurinn notar hins vegar geymslu vafrans sjálfs (sessionStorage og localStorage) fyrir fjögur atriði. Ekkert þeirra ber kennsl á þig og ekkert þeirra fer til þriðja aðila.

  • epm.session (sessionStorage): tilviljunarkennt númer sem er búið til þegar þú opnar vefinn í nýjum flipa og eyðist þegar þú lokar honum. Það er notað til að telja heimsóknina einu sinni en ekki á hverri síðu.
  • epm.ref (sessionStorage): kóði kynningartengils, ef þú komst inn á vefinn í gegnum slíkan tengil. Eyðist með flipanum.
  • epm.optout (localStorage): er aðeins til ef þú slekkur á heimsóknartalningu hér að neðan. Það geymir stillinguna þar til þú hreinsar gögn vefsins úr vafranum.
  • epm.admin (localStorage): aðeins í vafra umsjónarmanns vefsins eftir innskráningu í stjórnborðið. Gestir fá þetta aldrei.
03

Heimsóknartalningin

Vefurinn telur heimsóknir sjálfur, án þriðja aðila. Skráð er slóð síðunnar, tungumál, hvort tækið er sími, spjaldtölva eða tölva, lén þeirrar síðu sem vísaði þér hingað ef einhver var, og kóði kynningartengils. Ekki er skráð IP-tala, ekki fingrafar tækis og ekkert sem tengir heimsóknina við þig eða fylgir þér á milli vefja.

04

Hvers vegna ekki er beðið um samþykki

Samkvæmt 88. gr. fjarskiptalaga nr. 70/2022 er tæknileg geymsla upplýsinga í tæki notanda heimil þegar hún er í lögmætum tilgangi og með vitund notandans. Geymslan sem lýst er hér að ofan er af því tagi: hún er tæknileg, hún þjónar rekstri vefsins og þessi síða er til þess að þú vitir af henni. Sé vafrakökum eða greiningartækjum þriðju aðila bætt við síðar verður beðið um samþykki áður og þessi síða uppfærð.

05

Slökkva á talningu

Þú getur slökkt á heimsóknartalningu fyrir vafrann þinn hér. Stillingin er geymd í localStorage undir epm.optout og gildir þar til þú kveikir aftur eða hreinsar gögn vefsins.

Heimsóknartalning er á í þessum vafra.

06

Tenglar á aðra vefi

Á vefnum eru tenglar á Facebook og WhatsApp. Ekkert er sótt frá þeim fyrr en þú smellir á tengilinn, og þá gilda skilmálar og vafrakökur þeirra vefja, ekki okkar.

07

Breytingar

Breytist það sem vefurinn geymir í vafranum verður þessi síða uppfærð og dagsetningin með.